Fagnar fimm ára afmæli í dag og býður í kaffi

Huggulegasta kaffi­hús lands­ins sem gleður bæði hjarta og sál fagn­ar fimm ára af­mæli í dag og af því til­efni verður gest­um boðið upp á kaffi sér að kostnaðarlausu. Hér er um að ræða hið margrómaða kaffi­hús Café Kaja á Akra­nesi sem fagn­ar þess­um ánægjulegu tíma­mót­um. Café Kaja er rekið af frum­kvöðlin­um og dugnaðaforkinum Kar­enu Jóns­dótt­ur sem hef­ur verið öflugur brautryðjandi hér á landi í inn­flutn­ingi og fram­leiðslu á líf­ræn­um vör­um sem er hennar aðalsmerki. Hún hefur verið góður gestur á skjánum í þættinum Matur og Heimili með Sjöfn Þórðar á Hringbraut undanfarin misseri þar sem áhorfendur hafa fengið að njóta þess að fylgjast með framleiðslu hennar á lífrænum vörum og upplifunum í eldhúsinu og á kaffihúsinu.

Hringbraut og þátturinn Matur og Heimili ósk­ar Kaju innilega til hamingju með fimm ára afmælið.