Enn ein tímamótin hjá Guðmundi Felix: „Bara af því að ég get það“

Guðmundur Felix Grétarsson, sem nýlega gekkst undir handaágræðslu í frönsku borginni Lyon, tekur hvert framfaraskrefið á fætur öðru í bataferli sínu.

Eins og Hringbraut greindi frá fagnaði Guðmundur Felix því í gær að þá voru sex vikur liðnar frá því að hann gekkst undir aðgerðina. Um var að ræða ákveðin tímamót því viðmiðið er að sinar og vöðvar grói eftir um það bil sex vikur eftir stóra og flókna aðgerð eins og Guðmundur Felix gekkst undir.

Í dag birti Guðmundur Felix skemmtilega mynd á Instagram-síðu sinni af honum og eiginkonu hans. Á myndinni sést Guðmundur Felix brosa í vorblíðunni í Lyon og gefa eiginkonu sinni fimmu. „And then there was the first “high-five”, just because I can,“ sagði Guðmundur Felix við myndina.