Elva Ágústsdóttir segir á Twitter frá skemmtilegri sögu sem hófst er hún var í fríi á Portúgal með foreldrum sínum. Hún var þá 17 ára gömul og á ferð með foreldrum sínum. Þar kynntist hún Breta sem starfaði á bar. Þau ákváðu að byrja saman og eftir að Elva kom heim héldu þau sambandi með að skrifast á líkt og venjan var á þeim tíma en þetta átti sér stað árið 1997.
Eftir að hafa skrifast á í nokkra mánuði hættu þau bréfaskriftum. Tveimur árum síðar var Elva veik og ákvað að panta sér pizzu á Domino's. Er hún opnaði hurðina blasti við henni breski kærastinn. Sá var fluttur hingað til lands en hann hafði kynnst annarri íslenskri stelpu á barnum ári eftir að Elva var þar á ferð og flutti sumarið á eftir hingað til lands.
Sögunni er þó langt frá því að vera lokið og hér má smella á tíst Elvu, þar sem hún segir frá frekari vendingum í þessari skemmtilegu sögu.
Saga úr raunveruleikanum fyrir ykkur sem leiðist jafn mikið og mér.
— Elva Ágústsdóttir (@ElvaAgusts) August 3, 2021
Þegar ég var 17 ára var ég í fríi með foreldrum mínum í Portúgal.Þar kynntist ég Breta sem var að vinna á bar. Við byrjuðum saman,eins og fólk gerir í svona sumarævintýrum Við vorum rosalega ástfangin í 3 vikur1