Ónotaleg aðferð við að segja sannleikann

Jón Kristinn Snæhólm er kunnur fyrir beitt skrif sín og fasmikla framkomu í sjónvarpi. Jón Kristinn er vel máli farinn og kynnir skoðanir sínar með einföldum hætti. Hann er með næma athyglisgáfu. Kjarkleysi þekkir Jón Kristinn ekki fremur er hermaðurinn Njörður Snæhólm. Jón Kristinn hefur til að bera hugrekki sem eins og vöðvar styrkist við notkun. Þeir sem nenna að fylgjast með úr mikilli fjarlægð sjá að ekki leynir Björn Bjarnason fyrrum ráðherra andúð sinni á stöku Sjálfstæðismönnum og efnistökum þessara sömu Sjálfstæðismanna á pólitískum innanflokks málefnum. Björn Bjarnason er þannig líkur Davíð Oddssyni  -  í friði sem í stríði vaskur vígamaður og óvæginn þegar því er að skipta. Heift ef ekki beinlínis hatur koma þar stundum við sögu hjá þeim báðum og nægir þar að vísa í ótugtarleg skrif beggja um samtímamenn og um málefni líðandi stundar. Björn að vísu skrifar aldrei nú orðið í skjóli nafnleyndar. Öfugt við Davíð. Jón Kristinn skrifar um þetta lyndiseinkenni Björns Bjarnasonar í Facbook færslu: \"Getur einhver bent mér á hvar og hvenær Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur látið frá sér fara eitt styggðaryrði um Björn Bjarnason? Veit einhver hvar pólitíska áfallahjálp er að finna þannig að litlum manni í Reytkjavík líði betur og friður komist á í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík?\"

Mynd frá Mbl.is fylgir þessari frétt.  

frettastjori@hringbraut.is