Edda seg­ir barns­móð­ur fyrr­ver­and­i eiga vú­dú­dúkk­u af sér: „Sting­a í aug­un á mér“

Áhrifavaldurinn, hlaðvarpsstjórnandinn og Crossfit stjarnan Edda Falak greindi frá nokkuð einkennilegu atviki á Twitter í gær þegar hún tísti að barnsmóðir fyrrverandi kærasta síns hafi sagst eiga vúdúdúkku í líki Eddu sem hún hafi stundað að stinga í augun.

Edda segir umrædda konu einnig vera áhrifavald og því má leiða að því líkum að hún sé að tala um leikkonuna Kristínu Pétursdóttur, barnsmóður Brynjólfs Löve Mogensen verkefnastjóra samfélagsmiðla Árvakurs. Edda og Binni, eins og hann er kallaður, voru saman eins og frægt var en leiðir skildu hjá þeim í mars síðastliðnum eftir nokkurra mánaða samband.