Dóttir Svandísar greindist með heilaæxli sem reyndist vera krabbamein: „Þetta er stærsta verkefni lífs míns“

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, greindi frá því á Facebook síðu sinni í dag að dóttir hennar, listakonan Una Torfadóttir, væri alvarlega veik.

„Kæru vinir, nýlega greindist Una dóttir mín með heilaæxli sem reyndist vera krabbamein. Nú tekur við löng og ströng krabbameinsmeðferð,“ skrifar Svandís.

„Mitt verkefni verður að styðja hana í því ferli ásamt fjölskyldu og vinum. Þetta er stærsta verkefni lífs míns.

Hún hyggst nú skipuleggja vinnu sína í samræmi við breyttar aðstæður. „Ég ætla, með hjálp samstarfsfólks og fjarfunda, að sinna áfram störfum heilbrigðisráðherra og mun skipuleggja mína vinnu á næstunni í samræmi við breyttar aðstæður.“

Ráðherra ætlar sér ekki að fjalla frekar um málið opinberlega.