Ógeðfellt að krefja láglaunafólk um ábyrgð en hafa sjálfur þegið 40% launahækkun

Jóhann Þorvarðarson gagnrýnir harðlega frammistöðu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra í Silfrinu um helgina. Á Miðjunni vitnar Jóhann orðrétt í Bjarna sem tjáði sig um kjaraviðræður en fjármálaráðherra hafði þetta að segja:

En það eru ákveðin lögmál sem er ekki hægt að horfa fram hjá. Það eru stéttir sem eru rétt fyrir ofan þá sem eru á lægstu laununum sem munu alltaf spyrja sig var það þess virði að fara í 5 ára háskólanám?“

Jóhann segir Bjarna óttast höfrungahlaup eins og það er kallað og að faglært fólk myndi krefjast launahækkana og viðhalda með því ákveðnu launabili á við ófaglærða. Þá vitnar Jóhann aftur í önnur ummæli Bjarna sem sagði:

„Okkur hefur tekist stórkostlega að bæta lífskjörin á Íslandi og einna best við þá hópa sem helst eru í umræðunni í dag, eldri borgara og þá sem eru neðst í launastiganum“.

Jóhann birtir línurit og segir: „Skoðum báðar staðhæfingar ráðherrans“.

\"\"

„Á línuritinu eru tveir tekjuhópar skoðaðir: barnlausar og einstæðar konur sem búa í leiguhúsnæði og eru á aldrinum 25-64 ára. Tekjuhóparnir eru annars vegar þær konur sem tilheyra efsta launaflokki þjóðarinnar (T10) og hins vegar konur úr næst neðsta flokknum (T2).

Sjá má að munur á ráðstöfunartekjum hópanna vex úr 353.510 krónum árið 2013 og upp í 415.896 krónur árið 2018.  Sem sagt, ójöfnuður innan þessa hóps óx um 17,65%. Staðan batnar ekki þegar konur í næst hæsta launaflokknum eru skoðaðar (T9), en munur ráðstöfunartekna jókst um 22% milli T9 og T2 yfir sama árabil samanber línuritið.“

Jóhann segir að með þessu dæmist seinni fullyrðing Bjarna röng. Þá segir hann línuritið sína fram á að fyrri fullyrðingin standist ekki heldur. Það séu ekki láglaunakonur sem hafi hækkað laun og valdið höfrungahlaupi. Það hafi hafist hjá hálaunakonum fyrir nokkrum árum. Jóhann segir:

„Heildarmyndin breytist ekki ef hitt kynið er skoðað. Niðurstaðan er að ráðherra fór með fleipur, tvisvar sinnum! Ójöfnuður hefur aukist hjá þessum hóp. Þjóðarkökunni er illa skipt og þar liggur rót vandans. Eitthvað ógeðfellt er við það að krefja láglaunafólk um að axla ábyrgð á stöðugleikanum með fölskum áróðri en hafa sjálfur þegið rúmlega 40% launaleiðréttingu!“