Brynja Huld spyr stórra spurninga um ís­lenska hryðju­verka­hópinn: „Það vantar svo miklu fleiri upp­lýsingar“

Fjórir ís­lenskir karl­menn á þrí­tugs­aldri voru hand­teknir af sér­sveit ríkis­lög­reglu­stjóra vegna gruns um skipu­lagningu hryðju­verka. Tveir þeirra voru úr­skurðaðir i gæslu­varð­hald, annar í viku og hinn í tvær vikur.

Mennirnir eru einnig grunaðir um um­fangs­mikla vopna­fram­leiðslu með notkun þrí­viddar­prentara.

Brynja Huld Óskars­dóttir, öryggis- og varnar­mála­fræðingur, spyr stórra spurninga um málið en Brynja Huld er ein af fáu hryðju­verka­sér­fræðingum Ís­land.

„Vantar svo miklu fleiri uppl. til að greina á­­stæður & her­kænsku (stra­tegy) á bak­við skipu­lagningu þessara hryðju­­verka. Gremja & rót­tækni­hæning er grund­vallar­undan­fari í hryðju­­verkum og eiga stærstan þátt í stýra ein­stak­lingum inn á þessa braut,“ skrifar Brynja á Face­book.

„Hvaða öfga­hug­­mynda­­fræði stýrði ein­stak­lingum? Þekktust þeir fyrir? Eða kynntust þeir á netinu eða í öðrum fé­lags­­skap? Í öllu falli gífur­­lega stór breyting þegar kemur að upp­­lifun á hryðju­verka­ógn á Ís­landi,“ bætir hún við.

„Hryðju­­verk eru skil­­greind sem það fyrir­­bæri að beita of­beldi eða hótun um of­beldi vís­vitandi til að vekja ótta með það fyrir augum að breyta hegðun al­­mennings eða yfir­­valda til að ná pólitísku mark­miði,“ skrifar Brynja að lokum.

Fleiri fréttir