Bleikur Cosmopolitan fyrir kosningapartýið steinliggur

Hér kemur einn æðislegur kokteill fyrir kosningapartýið í kvöld sem steinliggur. Ekki skemmir fyrir að hafa hann bleikan og gleðja bæði augu og bragðlauka á skemmtilegan hátt. Berglind okkar Hreiðars einn vinsælasti matar-og kökubloggari landsins hjá Gotterí og gersemar er með puttann á púlsinum þegar kemur að drykkjarföngum í partýið líkt og partýréttunum. „Ég er auðvitað soddan sælkeri að ég mátti til með að sæta þennan drykk aðeins upp með því að setja sykur á barminn á glasinu en að sjálfsögðu megið þið sleppa því ef þið viljið bara hinn hefðbundna Cosmopolitan drykk,“segir Berglind og nýtur þess að útbúa litríka og skemmtilega drykki þegar tilefni er til.

Þennan drykk er fallegast að bera fram í hanastéls glasi.

M&H Cosmopolitan 3.jpeg

Cosmopolitan

Fyrir eitt glas

  • 30 ml Cointreu
  • 30 ml Russian Standard Vodka
  • 20 ml trönuberjasafi
  • Safi úr ¼ lime
  • Klakar
  1. Setjið allt saman í hristara og hristið vel saman.
  2. Sigtið/takið klakana frá og hellið í glas.
  3. Fallegt er að skreyta glasið með lime berki og með því að dýfa barminum í smá lime safa og síðan í sykur. Drykkurinn er alls ekki sætur sjálfur svo þetta er leið til þess að gera hann örlítið sætari.

Svo bara að njóta og fá sér létt snarl með eftir smekk hvers og eins.

M&H Cosmopolitan í kosningapartýið 1.jpeg