Björn henti Gunnari Smára út: „Hefði hent lyklinum væri hann til staðar!“

Grindvíkingurinn Björn Birgisson lætur engan vaða yfir sig og breytir þá engu hvort viðkomandi er forystumaður í stjórnmálaflokki. Björn greip til þess ráðs um helgina að sparka Gunnari Smára Egilssyni, fyrrverandi fjölmiðlamanni og stofnanda Sósíalistaflokksins, af vinalistanum.

Björn, sem þykir býsna glöggur samfélagsrýnir, útskýrði þessa ákvörðun sína á Facebook.

„Stundum fara hlutir úr böndunum vegna orða sem látin eru falla. Hef eins og margir fleiri leitað eftir skýringum á óvæntri niðurstöðu Sósíalistaflokksins í kosningunum í haust.

Mín niðurstaða var og er sú að Gunnar Smári hafi farið offari í skrifum og málflutningi sínum og hann sé því ein helsta ástæða þess að fylgið virtist hrynja af flokknum síðustu þrjár vikurnar fyrir kjördag.“

Björn segir að Gunnar Smári hafi tekið þessari ályktun afar illa og stutt verið hjá honum í niðrandi orð í hans garð.

„Ég er ýmist genginn til liðs við skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins, handbendi Samfylkingarinnar eða farinn að aðhyllast nýfrjálshyggjuna að ekki sé minnst á hversu takmarkaður ég er og óhæfur til skrifa og orðaskipta. Svo fátt eitt sé nefnt af orðaleppunum.“

Björn lætur ekki bjóða sér hvað sem er og henti hann Gunnari Smára út af vinalistanum.

„Ég einfaldlega nenni ekki að sitja undir svona þvættingi, kvaddi hann og henti honum af vinalistanum, lokaði vel á eftir og hefði hent lyklinum væri hann til staðar!“