Bjarni furðar sig á umræðunni um COVID-19: Mikið fleiri deyja af öðrum ástæðum

Bjarni Jónsson, eigandi Nordic Store og fyrrverandi dósent, kveðst furða sig á þeim viðbrögðum sem uppi eru vegna COVID-19-faraldursins. Á dögunum var greint frá því að ein milljón manna hefði látist á árinu af völdum farsóttarinnar.

„Fjölmiðlar hafa nánast allt þetta ár varið um helmingi tíma síns í að fjalla um þennan sjúkdóm og afleiðingar hans. Fólk er lamað af hræðslu og lætur yfir sig ganga að vera lokað inni á heimilum sínum vikum saman, svipt persónu- ferða- og atvinnufrelsi. Efnahagur landa og heimila hrynur, fyrirtæki fara í þrot, atvinnuleysi og fátækt stóreykst. Viðbrögð yfirvalda við Covid veldur djúpri kreppu og meiri hörmungum en sjúkdómurinn sjálfur,“ segir Bjarni í grein sem hann birti á Vísi í morgun.

Hann segir að fjöldi greindra með COVID-19 hafi aukist með auknum skimunum og segir að „dauðsföll eru svo fá í Evrópu að í venjulegu ári hefði enginn tekið eftir þeim.“

Bendir Bjarni á að skráð dauðsföll á Spáni í seinni bylgju faraldursins séu aðeins um 5-10 prósent af því sem þau voru í fyrri bylgjunni, jafnvel þó seinni bylgjan sé meira en tvöfalt stærri í smitum talið.

„Auðvitað er alltaf sorglegt þegar fólk deyr, og sorglegast er að vita af börnum deyja. Við, góða fólkið, megum þó ekki missa sjónar af heildarmyndinni,“ segir hann. Hann segir að COVID-19 trompi alla sjúkdóma og orsakir dauðsfalla í heiminum ef marka má umfjöllun fjölmiðla.

„Um 1 milljón hafa dáið úr Covid, nær eingöngu háaldrað fólk. Það hafa t.d. 8 sinnum fleiri dáið úr hungri það sem af er ári, mest börn. Nær jafn mörg ung börn hafa dáið af niðurgangspestum vegna mengaðs drykkjarvatns og úr Covid. Fleiri hafa dáið úr Aids það sem af er ári. Það hafa 4 sinnum fleiri dáið af völdum reykinga en Covid og álíka margir dáið í umferðarslysum og Malariu.“