Baðvörðurinn sá ekki typpið á Brynjari: „Skil ég betur þá sem eru að berjast fyrir kynlausu búningsklefunum“

Brynjar Níelsson heldur áfram líkamsræktarátakinu sínu eftir að hann datt út af þingi í Alþingiskosningunum. Hann segir á Facebook að það hafi ekki gengið þrautalaust fyrir sig.

„Ég hef verið að reyna að læra á öll þessi hættulegu tæki, sem er ekki einfalt. Það fer því ekki vel í mig í viðkvæmum aðstæðum þegar sterkir strákar taka upp því skella mörg hundruð kílóa lóðum í gólfið si svona og öskra jafnvel fyrirvaralaust,“ segir hann. „Það hefur slegið mig svo út af laginu að ég hef þyngst um hálft kíló eftir hverja ferð í ræktina.“

Brynjar segir að hann hafi oft verið spurður hvað hann taki í bekk.

„Kraftatröllinn í ræktinni settu mig á bekkinn. Mér leið vel þar enda vanur á vera á bekknum. Ég hyggst ekki upplýsa þjóðina um hvað ég tek í bekk en get sagt að stöngin ein sér er mjög þung.“ Má geta þess að stöngin er um 20 kíló.

Brynjar heldur áfram og segir frá hrakförum sínum í sturtunni:

„Þetta var nú allt smá mál miðað við hremmingarnar þegar ég stóð allsber í sturtunni eftir allt erfiðið. Baðvörðurinn vatt sér að mér reiðilegur á svip að sagði mér að hypja mig umsvifalaust. Ég reyndi að malda í móinn en hann sagði að þeir sem væru með svona brjóst og ekki typpi svo séð verði ættu að vera í kvennaklefanum. Nú skil ég betur þá sem eru að berjast fyrir kynlausu búningsklefunum.“