Bubbi Morthens og Auður munu gefa út lagið Tárin falla hægt sem kemur út á á miðnætti í kvöld.
Í tilkynningu frá þeim segir að stórir gítarar, stríðstrommur og angurvær hljóðheimur einkenni lagið.
Auður hefur ekki gefið út nýtt lag frá því hann gaf út EP plötuna Venus í fyrra. Í júní í fyrra sagði Þjóðleikhúsið að það hefði ásakanir á hendur tónlistarmanninum til skoðunar. Átti hann að semja tónlist í leiksýningunni Rómeó og Júlíu sem frumsýnd var í september í fyrra ásamt Sölku Valsdóttir en ekkert varð úr því vegna málsins.
Söngvarinn hefur viðurkennt að hann hafi brotið á konum, farið yfir mörk og verið ógnandi, en þá vísaði hann öðrum orðrómum um þöggunarsamninga og brot gegn stúlku undir lögaldri alfarið á bug og sagði það uppspuna frá rótum.
Bubbi tjáði sig um málið á Twitter og sagðist trúa tónlistarmanninum.