Gísli Rúnar Jónsson er látinn

Gísli Rúnar Jónsson leikari, leikstjóri, handritshöfundur og þúsundþjalasmiður er látinn.

Gísli lést á heimili sínu í gær, þann 28. júlí, 67 ára að aldri.

„Með djúpri sorg tilkynnum við fjölskyldan að okkar ástkæri Gísli Rúnar Jónsson leikari, leikstjóri, handritshöfundur og þúsundþjalasmiður er látinn,“ segir í tilkynningu frá fjölskyldu Gísla Rúnars.

„Fjölskyldan syrgir kærleiksríkan og einstakan fjölskylduföður og þjóðardýrgrip."