Vopnað rán í reykjanesbæ - einn handtekinn

Vopnað rán var framið í skartgripaverslun Georgs. V. Hannah við Hafnargötu í Reykjansebæ laust fyrir hádegi. Einn var handtekinn á staðnum vegna málsins. 

Lögregla hefur ekki viljað tjá sig en Víkurfréttir hafa eftir vitnum að karlmaður hafi verið leiddur út úr versluninni í járnum. Maðurinn er sagður hafa verið vopnaður hamri og brotið glerborð í versluninni með honum. Ástand hans er sagt hafa verið annarlegt. 

Maðurinn er sagður vera á þrítugsaldri.