„við metum mikils það góða samband sem ríkir milli íslands og grænlands“

Ane Lone Bagger ráðherra mennta-, menningar- og utanríkismála í grænlensku landsstjórninni fundaði í dag með Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Ráðherrarnir ræddu samstarf og tengsl landanna og þá möguleika sem felast í auknum samskiptum þeirra á sviði mennta- og menningarmála. Grænlenski ráðherrann er stödd hér á landi í tilefni af ráðstefnu Hringborðs norðursins þar sem hún var meðal ræðumanna. Þetta kemur fram á vef Menntamálaráðuneytisins. Þar segir enn fremur:

Á fundi sínum ræddu ráðherrarnir meðal annars fyrirhugaða vísindaviku sem haldin verður á Grænlandi í byrjun desember.

„Við metum mikils það góða samband sem ríkir milli Íslands og Grænlands og viljum efla okkar samvinnu til framtíðar, þar tel ég vera mörg sóknarfæri,“

sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra að fundi loknum.

Mikilvægur áfangi náðist í samskiptum þjóðanna þegar grænlensk stjórnvöld opnuðu sendiskrifstofu á Íslandi í október í fyrra og verður það án efa til að efla enn frekar samstarf Íslands og Grænlands.