Veðrið náð hámarki á höfuðborgarsvæðinu: lögreglan þakkar borgarbúum

Veðrið hefur náð hámarki á höfuðborgarsvæðinu og mun það ganga niður hægt og rólega það sem eftir lifir kvölds og í nótt, en í fyrramálið ættu allir í umdæminu að geta farið aftur í skóla og til vinnu eins og ekkert hafi í skorist þótt áfram verði norðanátt og hiti um frostmark. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir enn fremur:

Það hefur annars verið í mörg horn að líta hjá lögreglunni og öðrum viðbragðsaðilum í allan dag, en útköllin það sem af er eru í kringum fimmtíu. Kallað hefur verið eftir aðstoð víða á höfuðborgarsvæðinu, en flestar hjálparbeiðnir þó líklega borist úr vesturhluta borgarinnar og frá Seltjarnarnesi. Miðað við veðrið hefði mátti búast við fleiri hjálparbeiðnum, en fólk brást vel við öllum tilmælum viðbragðsaðila og því varð álagið minna en ella og fyrir það viljum við þakka. Þegar leið á daginn var sáralítil umferð og mjög fáir á ferli. Greinilegt er að hugað var vel að lausamunum, ekki síst á byggingarsvæðum.

Við verðum að sjálfsögðu áfram á vaktinni, en vonum að þið hafið átt ánægjulegan dag þrátt fyrir veðrið.

Við sendum líka góðar kveðjur til viðbragðsaðila og íbúa út um allt land og vonum að veðrið í öðrum landshlutum fari líka að skána.