Var viss um að hann væri staddur í reykjavík: handtekinn á akureyri

Karlmaður var handtekinn á Akureyri í annarlegu ástandi klukkan fimm í morgun. Maðurinn hafði farið inn í heimahús í bænum og höfðu húsráðendur samband við lögregluna. Þekktu íbúar hússins ekkert til mannsins. Mbl.is greinir frá.  

Þegar lögregluþjónar komu á vettvang var maðurinn viss um að hann væri staddur í höfuðborginni, Reykjavík. Var maðurinn færður á lögreglustöð þar sem hann sefur úr sér og nær aftur áttum.