Uppskrift: himneska salatið hennar kaju sem tryllir bragðlaukana, hver munnbiti einkennist af nýju bragði

Ferskmeti, ljúffeng brögð og hollustan er í fyrirrúmi á nýju ári og ekkert er skemmtilegra en að prófa nýja samsetningu þegar við búum okkur til ljúffengt salat.  Sjöfn Þórðar heimsótti Karenu Jónsdóttur, sem ávallt er kölluð Kaja, í Matarbúr Kaju á Akranesi og prófaði nýjustu salatblönduna hennar.  Upplifun Sjafnar var tryllingslega ljúffeng þar sem bragðlaukarnir nutu sín í botn með hverjum munnbita. Þetta er salat sem enginn má láta framhjá sér fara að njóta. „Það sem einkennir salatið er upplifunin við að borða það en hver munnbiti einkennist af nýju og nýju bragði.  Bragð sem kemur skemmtilega á óvart sérstaklega þar sem þetta er salat. VIð notum lífræn hráefni og svo íslenskt ef við náum ekki í lífræn,“ segir Kaja og mjög ánægð með útkomuna. Sjöfn fékk Kaju til að gefa lesendum uppskriftina af þessu dásamlega ljúffenga salati sem er kærkomið að njóta í janúar. Vert er að segja frá því að hægt er að kaupa salatið í Matarbúri Kaju í „Take away“.

Fræ- og hnetublanda

100 g sólblómafræ 

100 g kasjúhnetubrot 

TamarisósaFræin eru sett i skal og tamarisósunni hellt yfir svo blandan nái að draga í sig vökvan. Látið standa í um það bil 10 mínútur. Blandan er síðan tekin úr vökvanum og sett á bökunarplötu smjörpappír undir. Bakið blönduna við blástur í um það bil 10 mínútur við 155°C gráðu heitan ofn eða þar til að blandan er orðin þurr og stökk.

Hummus

1 krukka soðnar kjúklingabaunir

1dl ólífuolía

3 msk. tahini

1 pressað hvítlauksrif

1 tsk. sítrónusafi

Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél, mögulega þarf að bæta við ólífuolíu, geymist í kæli í allt að viku. 

Fagur græn dressing

100 ml lífræn ólífuolía

20 g kasjúhnetur

1  pressað hvítlauksrif

1 tsk. sítrónusafi

30 til 50 g af klettasalati

Setjið allt hráefnið er sett í blandara.  Athugið að það þarf mögulega þarf að bæta ólífuolíu við. Geymist í kæli.

Salat al la Kaja  

Samsetning á salatinu sett í skál 

Blandað Lambhaga salat 1 lúka

lífrænt klettasalat um það bil 10-20 g

Eco spírur

dass af blaðlauks-, radísu-, brokkólí- og alfa alfa spírum

rauðlaukur skorin í sneiðar eftir smekk

tómatsneiðar eftir smekk

dass af döðlubitum eftir smekk

1,5 msk. af hummus

2 msk. af fræ- og hnetublöndu

salatdressing eftir smekk

svört sesamfræ til skrauts en þau eru mjög magnesíum rík

Njótið vel.