Um tíu manns færðir á lögreglustöð: verða líklega reknir úr landi og settir í endurkomubann

„Afskipti voru höfð af um 20 manns í umfangsmiklum aðgerðum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, embætti ríkisskattstjóra, Vinnueftirlitsins og Vinnumálastofnunar fyrr í vikunni í þágu rannsóknar vegna grunsemda um skráningar á kennitölum í gegnum Þjóðskrá með sviksömum hætti.“

Þetta kemur fram í skeyti frá lögreglu. Þar segir enn fremur:

„Tæplega helmingur mannanna var færður á lögreglustöð, en þar kom í ljós að hinir sömu höfðu ekki atvinnuréttindi til starfa hérlendis. Útlendingastofnun hefur nú mál þeirra til frekari meðferðar, en mennirnir eiga yfir höfði sér hugsanlega brottvísun og endurkomubann.

Hinn helmingur hópsins gat ekki gert grein fyrir sér við afskiptin og því þurfti að ganga úr skugga um það með skoðun persónuskilríkja þeirra í framhaldinu.

Tók það nokkurn tíma, en hinir sömu reyndust allir uppfylla tilskilin skilyrði til starfa á Íslandi og gátu þeir því haldið áfram störfum sínum.

Rannsóknin lýtur einnig að vinnuveitendum mannanna og hafa þeir verið kallaðir til yfirheyrslu til að leita frekari skýringa á tilurð málsins.“