„Álverið í Straumsvík hefur verið rekið með miklum halla síðast liðin misseri og ekki útlit fyrir að ástandið muni batna. Enda stærðin óhagkvæm og verksmiðjan nánast staðsett í íbúðabyggð.“
Á þessum orðum hefur Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir, nýjan pistil sinn þar sem hann segir Álverið í Straumsvík vera á líknandi meðferð, en hugsanlegan líffæragjafa. Í samtali við Hringbraut segist Tómas hafa skrifað pistilinn eftir Silfur dagsins.
Þessar fréttir eru góðar fyrir íslenska náttúru
„Nú hefur Rio Tinto ákveðið einhliða að minnka framleiðsluna og mun á næsta ári kaupa 15% minna af orku af Landsvirkjun. Þetta er engin smá orka sem um ræðir - eða í kringum 50 MW - sem jafngildir nánast allri þeirri orku sem Hvalárvirkjun á að skila inn í raforkukerfið - kerfi sem þegar er ofalið. Þessar fréttir eru því góðar fréttir fyrir íslenska náttúru - og þá sérstaklega fossa og jarðhitasvæði sem vonandi fá að vera í friði fyrir komandi kynslóðir,“ segir hann.
„Í Silfri dagsins komst ég þannig að orði að Straumsvík sé sennilega komin á líknandi meðferð. Þetta þýðir á læknamáli að lækning sé ekki lengur í boði. Starfsmenn verksmiðjunnar og bæjaryfirvöld í Hafnarfirði þurfa því að búa sig undir það að hvorki verði beitt hjartahnoði né adrenalíni við frekari hjartsláttaróreglu,“ segir Tómas og bætir því við að líklega muni þetta snerta suma illa en að það sé vonandi aðeins tímabundið.
„Enda engin ástæða til að örvænta. Þarna geta leynst miklu meiri möguleikar og ábatasamari en að bræða ál. Lóðin er einhver sú dýrmætasta á höfuðborgarsvæðinu og nú getur Landsvirkjun beitt sér fyrir sölu á raforku til annarrar og uppbyggilegri starfsemi, t.d. grænmetisbænda og flýtt fyrir rafvæðingu bíla- og skipaflotans,“ segir hann.
Gæti orðið líffæragjafi fyrir aðrar atvinnugreinar
Þá segir Tómas að um leið ætti Landsvirkjun að lækka verð á toppafli til HS Orku sem yrðu um leið líkkistunagli í þá annars óhagstæðu og gerræðislegu framkvæmd.
„Straumsvík, sem nú er farin að lýjast en var klárlega framfaraskref fyrir hálfri öld - gæti því orðið eins konar líffæragjafi fyrir aðrar atvinnugreinar og sérstaklega víðerni landsins.“