Þrjú snjóflóð staðfest en reikna með að fleiri hafi fallið - óvissustig enn í gildi á mið-norðurlandi

Samkvæmt upplýsingum frá ofanflóðvakt Veðurstofunnar hafa tvö snjóflóð fallið í dag í Suðavíkurhlíð og eitt í Langadal. Ófært er á svæðunum og því er ekki talin hætta á því að nokkur hafi lent í flóðunum.

Snjóflóðið sem féll í Langadal í Húnavantssýslu féll á þjóðveginn norðan við brúna yfir Svartá og er það um fimmtíu metra breitt og tveggja metra djúpt. Flóði tvö sem féllu á veginn við Súðavíkurhlíð voru svipað stór.

Mbl.is greindi frá en þar segir að óvissustig vegna snjóflóðahættu á Mið-Norðurlandi sé enn í gildi og verði fram eftir degi.

Magni Hrein Jónsson, sérfræðingur á ofanflóðvakt Veðurstofunnar segir þau fastlega reikna með því að fleiri flóð hafi fallið.

Ekki verður gripið til sérstakra aðgerða vegna flóðanna að svo stöddu.