„Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði nýlega á fundi læknaráðs Landspítalans að það væri mikil áskorun fyrir hana að standa með spítalanum þegar ályktanir um slæma stöðu stofnunarinnar kæmu út á færibandi.
Þetta er fordæmalaust tal ráðherra til starfsmanna opinberrar stofnunar. Það sem ráðherra er að segja er skýrt: Tali starfsmenn Landspítala um ástand mála innan veggja hans er ekki sjálfgefið að hún hafi áhuga á að vinna að lausnum á vanda stofnunarinnar,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingismaður Viðreisnar í skoðun sinni „Hótun heilbrigðisráðherra“ í Fréttablaðinu í dag.
Grímulaus hótun ráðherra
Þorgerður segir alla skilja hvað þessi orð Svandísar þýði í raun og veru og að grímulausari geti hótunin vart verið.
„Álykti starfsfólk eða segi frá á annan veg en ráðherra þóknast kemur það niður á fjárveitingum til spítalans,“ segir Þorgerður og bætir því við að þessu megi ekki jafna til pólitískra skylminga á Alþingi.
„Ráðherra er ekki að tala við þá sem hafa sama umboð og hún frá fólkinu í landinu. Ráðherravaldi er beitt gagnvart undirmönnum til þess að koma í veg fyrir óþægilega umræðu. Óhjákvæmilega munu þessi ummæli því hafa áhrif.“
Þá segir Þorgerður landsmenn hér eftir hafa réttmæta ástæðu til þess að spyrja hvort frásagnir starfsfólks lýsi raunverulegum aðstæðum á Landspítalanum eða bara því sem ráðherra vill að heyrist.
„Gagnvart almenningi er verið að grafa undan trausti á gagnsæi í umræðu um opinber málefni. Um einhver viðamestu og mikilvægustu verkefni stjórnvalda. Hin hlið þessa máls er ekki síður alvarleg. Þegar alþingismenn, handhafar fjárveitingavaldsins, kalla eftir upplýsingum frá starfsmönnum opinberra stofnana eiga þeir að geta treyst því að þær séu fullnægjandi. En ekki aðeins upplýsingar sem ráðherra eru þóknanlegar,“ segir Þorgerður.
Þegar málið sé skoðað í þessu ljósi, segir Þorgerður að ummæli heilbrigðisráðherra séu ekki bara til marks um hvernig hún hugsi á valdastóli, óvirðing við starfsfólk Landspítalans, hótun um að skjólstæðingar spítalans muni gjalda fyrir ef starfsfólkið tali ekki eftir forskrift ráðherrans heldur segir hún hótun ráðherra ekki síst grafa undan virku lýðræði á löggjafarsamkomunni.
„Þar sem réttar og nákvæmar upplýsingar eru forsenda skynsamlegra umræðna og lýðræðislegra ákvarðana.“