Þórarinn Helgi Agnarsson hefur stefn íslenska ríkinu vegna þriggja daga gæsluvarðhalds sem hann mátti þola í ársbyrjun 2018. Í stefnu Þórarins, sem er 33 ára gamall, er Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra tilgreindur sem fyrirsvarsmaður ríkisins í málinu. Í frétt DV um málið segir að algengt sé að ráðherrum sé stefnt fyrir hönd ríkisins þegar höfð er mál gegn ríkinu.
Þórarinn neitaði sök í málinu og rannsókn var felld niður. Þórarinn sat í haldi grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna sem og að hafa verið á stolnum bíl og var einnig grunaður um að vera með þýfi í bílnum. Þórarinn játaði að hafa ekið undir áhrifum en neitaði að hafa nokkuð með þýfið að gera.
Í stefnunni segir að Þórarinn hafi verið grunaður um innbrot og þjófnað á verkstæði við Súðarvog 38 í Reykjavík og tekið þaðan bíllykla úr lyklaboxi. Hann hafi ásamt öðrum manni tekið ökutæki ófrjálsri hendi. Þórarinn var síðan handtekinn af lögreglu. Við leit í bifreiðinni fannst talsvert magn af munum sem lögregla taldi að væri þýfi.
Þórarinn neitaði þessi, bæði að hafa tekið bílinn og að hafa brotist inn. Hann var engu að síður úrskurðaður í þriggja daga gæsluvarðhald. Í stefnunni segir sem birt er á vef DV segir:
„Gerði hann það lögreglu skýrt að hann hafði ekki stolið neinum bíl og hefði hann ekki komið að ákvörðun um að stela bílum. Stefnandi væri einungis fastur í aðstæðum sem hann væri að reyna að koma sér út úr.“
Málið var síðan fellt niður eftir að hafa dvalið þrjá daga í varðhaldi. Þórarinn vill 2,5 milljónir í miskabætur.