Starfsmanni reykjalundar hótað eftir viðtal af aðila tengdum stjórn síbs: „við slíkt er ekki unað“

Starfsmenn Reykjalundar hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna ástandsins á Reykjalundi. Þar segir að samskipti aðila tengdum stjórn SÍBS við starfsmann sem fór í viðtal við fjölmiðla megi túlka sem hótun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem starfsmenn sendu á fjölmiðla. Yfirlýsingin er svohljóðandi.

Yfirlýsing frá starfsmönnum ReykjalundarStarfsmenn Reykjalundar harma það fordæmalausa ástand sem skapaðist á Reykjalundi þegar framkvæmdastjóra lækninga Magnúsi Ólasyni var fyrirvaralaust vikið úr starfi síðdegis þann 9. október.

Við brottvikningu framkvæmdastjóra lækninga þá skapaðist óvissuástand þar sem það embætti ber ábyrgð á faglegri þjónustu gagnvart forstjóra.

Nú hefur þeirri óvissu verið eytt og er það ávallt forstjóri sem ber hina endanlegu ábyrgð á veitingu heilbrigðisþjónustu stofnunar.

Starfsfólki Reykjalundar þykir miður að þetta ástand hafi bitnað á þeim skjólstæðingum stofnunarinnar sem voru til meðferðar á þessum tíma og valdið þeim vanlíðan.

Starfsemi Reykjalundar var með eðlilegum hætti í dag 11. október. Starfsfólk Reykjalundar mun ávallt sinna sínum skjólstæðingum af fagmennsku og alúð og fylgja lögum í hvívetna.

Því miður gerðist það að starfsmaður Reykjalundar sem tjáði sig við fjölmiðla vegna ástandsins, fékk sendan tölvupóst frá aðila tengdum stjórn SÍBS sem túlka má sem hótun. Við slíkt er ekki unað.

Að svo að svo stöddu vísar undirrituð frekari fyrirspurnum fjölmiðla til starfandi forstjóra Reykjalundar.

Fyrir hönd starfsmanna Magdalena Ásgeirsdóttir formaður læknaráðs Reykjalundar.