Starfsfólk ósátt: „staðan er grafal­var­leg“

Megn óánægja er meðal starfs­fólks vegna „yf­ir­gangs stjórn­ar­for­manns SÍBS.“

Þetta seg­ir Jón Gunn­ar Þor­steins­son, sjúkraþjálf­ari á Reykjalundi, um ástandið á Reykjalundi í samtali við mbl.is. Þar er greint frá því að allir sjúklingar sem eru í endurhæfingu hafi verið sendið heim eftir brottrekstur Magnúsar Ólasonar framkvæmdastjóra lækninga á Reykjalundi í gær.

Magnús hafði starfað á endurhæfingarstöðinni í 35 ár. Uppsögnin kom beint í kjölfar þess að Hringbraut greindi frá því að  Birgi Gunnarsyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Reykjalundar til 12 ára, hefði verið sagt upp fyrirvaralaust þann 30. september. Birgir var leiddur út úr skrifstofum Reykjalundar af stjórnarformanni og varaformanni stjórnar SÍBS sama dag og hann skrifaði undir starfsmannalokasamning. Birgir og Magnús náðu vel saman. Samkvæmt heimildum Hringbrautar ásælist stjórn SÍBS leigutekjur sem Reykjalundur hefur af húsnæðinu en SÍBS leggur ekki fjármuni til rekstursins.

Á vef mbl.is kemur fram að óánægjan stafi helst vegna þeirra ákvörðunar að rekja Magnús eftir áratuga starf nokkrum vikum fyrir áætluð starfslok sem og brottrekstur Birgis.

Birgir fékk ekki að kveðja starfsfólkið og engar útskýringar voru gefnar starfsfólki.

Þá hefur eftirfarandi komið fram:

Árið 2013 ákvað stjórn SÍBS að leigutekjur af húsnæði Reykjalundar skildu renna beint til félagsins en ekki til rekstrar Reykjalundar. Fjármagnið vegna leigutekna er um 30 milljónir árlega. Að sögn heimildarmanna barðist Birgir hart gegn því að umræddir fjármunir yrðu teknir úr rekstri Reykjalundar enda ljóst að slíkur niðurskurður myndi fyrst og fremst bitna á sjúklingum og starfsfólki. Birgir hafði betur í baráttunni en með skipan nýs forstjóra stendur ekkert í vegi stjórnar SÍBS að taka þessar dýrmætu 30 milljónir króna sem áður fóru til Reykjalundar og færa þær yfir í rekstur SÍBS, þar sem samþykkt stjórnar liggur fyrir. Þá segja heimildarmenn Hringbrautar að stjórn SÍBS sögð að reyna ítrekað að hafa áhrif á ákvörðunartöku þegar kemur að daglegum rekstri Reykjalundar. Þess má geta að SÍBS leggur enga fjármuni í daglegan rekstur Reykjalundar heldur sér íslenska ríkið alfarið um að fjármagna starfsemina sem þar fer fram.