Sorphirða hefst í Breiðholti í fyrramálið

Sorphirða fer aftur í gang í Breiðholti í fyrramálið eftir að undanþága fékkst frá verkfalli Eflingar vegna lýðheilsusjónarmiða. Efling hefur samþykkt beiðni Reykjavíkurborgar um undanþágu frá verkfalli vegna sorphirðu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Í mið­bæ Reykja­víkur í dag má sjá rusl á víð og dreif enda hefur sorp­hirða ekki farið fram með venju­bundnum hætti síðast­liðnu daga vegna verkfalls Eflingar. Fólk hefur farið með ruslið sitt beint í Sorpu og íbúar í fjölbýlishúsum hafa tekið upp á því að loka fyrir ruslalúgur. Á Hlemmi má sjá ruslapoka teipaða yfir ruslaföturnar til að koma í veg fyrir að rusl fjúki. 

Undanþágan sorphirðunnar í Breiðholti gildir til 6. mars næstkomandi. Byrjað verður að hirða sorp í Breiðholti strax í fyrramálið og biður sorphirðan íbúa sérstaklega um að moka vel frá sorpílátum og tryggja aðgengi að sorpgeymslum. Þá er nauðsynlegt að ganga vel frá aukaúrgangi í gráa plastpoka til að flýta fyrir hirðu. Eftir að hirðu lýkur í Breiðholti um miðja viku verður farið í að hirða sorp í Árbæ en ekki náðist að hirða sorp í þessum tveimur hverfum áður en ótímabundið verkfall Eflingar hófst.

Aðeins verður hirt blandað heimilissorp í þessari viku en hvork pappír né plast.  

Hægt er að losa sig við flokkaðan úrgang á endurvinnslustöðvum SORPU og á grenndarstöðvum víðsvegar um borgina.