Skúli vill að sveini andra verði vikið frá sem skiptastjóri þrotabús wow

Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri WOW air vill að Sveini Andra Sveinssyni verði vikið frá störfum sem skiptastjóri þrotabús flugfélagsins.

Fréttablaðið greinir frá því að hann hafi gert kröfu til Héraðsdóms Reykjavíkur sem hann byggir á því að skiptastjórinn hafi veitt rangar og villandi upplýsingar um mikilvæg málefni búsins bæði á skiptafundum sem og í fjölmiðlum.

Segir Skúli Svein hafa rýrt traust sitt sem skiptastjóra verulega og vísar hann meðal annars til umfjöllunar Fréttablaðsins um kaup Ballarin á eignum þrobabúsins þar sem Sveinn Andri sagði að uppsett kaupverð væri þegar greitt en í ljós kom að svo var ekki.

Einnig byggir Skúli kröfu sína á meintri vanrækslu Sveins við upplýsingagjöf og á því að hann hafi tekið sér þóknun af fé búsins án þess að hafa heimild til þess.

Verður krafa Skúla tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku.