Varðskipið Þór er til taks í Ísafjarðardjúpi ef á þarf að halda en skipið hefur sinnt eftirliti á hafsvæðinu umhverfis landið undanfarna daga. Þá eru þyrlur Landhelgisgæslunnar sömuleiðis til taks í Reykjavík. Lítil skipaumferð er nú á Vestfjörðum. Meðfylgjandi myndbönd voru tekin af áhöfn varðskipsins Þórs í nótt þegar skipið var út af Dýrafirði snemma í morgun. Eins og sjá má var þá farið að hvessa hressilega á Vestfjarðamiðum og gekk sjórinn yfir varðskipið.
Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að fjögur skip séu stödd hjá Grænuhlíð og eitt tankskip á leið fyrir Hornbjarg og fer suður með Vestfjörðum. Engin skipaumferð er á miðunum norður af landinu en stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fylgist vel með skipaumferð umhverfis landið allt.