Sigurjón M Magnússon blaðamaður ritstjóri Miðjunnar skrifar í dag.
„Bjarni Benediktsson er sérstakur maður. Einhverra hluta vegna kemst hann upp með allan fjárann. Nær sér alltaf í stuðningsfólk. Héðan og þaðan. Nú hefur opinberast að hann tók peninga úr einum af sjóðum þjóðarinnar; Ofanflóðasjóði og nýtti þá í eitthvað allt annað. Eyrnarmerkta peninga.”
Sigurjón heldur áfram. „Svona gaurum er bara ekki treystandi. Virða ekkert og hirða ekkert um rangt eða rétt. Ef Bjarni væri gjaldkeri húsfélags er honum treystandi til að nota hússjóðinn til einhverra hluta sem koma sjóðnum ekkert við. Svona gangsterar eru til. Þeir eru erfiðir og einatt til vandræða.”