Mannréttindadómstóll Evrópu hefur hafnað ósk Sigríðar Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, um að koma á framfæri sjónarmiðum sínum í máli sem rekið er fyrir yfirdeild Mannréttindadómstólsins vegna skipunar dómara í Landsrétt.
Sigríði var tilkynnt þetta í dag og sú ástæða gefin að ósk Sigríðar hefði komið fram of seint. Hún segir Vilhjálm Vilhjálmsson lögmann hafa brigslað sér um saknæmt athæfi í greinargerð til réttarins. Þeim dylgjum hafi verið nauðsynlegt að svara.
www.ruv.is greynir frá.