„Íslenska þjóðkirkjan virðist ekki eiga upp á pallborðið um þessar mundir. Samkvæmt nýjum tölum sem Þjóðskrá birti í vikunni um skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög fækkaði þeim sem skráðir eru í þjóðkirkjuna um 1.501 á milli ára. Tæplega 133.000 manns standa nú fyrir utan þjóðkirkjuna, eða 36,5 prósent landsmanna, en árið 1992 voru 92,2 prósent landsmanna skráð í þjóðkirkjuna.“
Þetta segir einn vinsælasti og beittasti pistlahöfundur þjóðarinnar, rithöfundurinn Sif Sigmarsdóttir í helgarblaði Fréttablaðsins. Þar gagnrýnir Sif biskup Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttir og Þjóðkirkjuna harðlega. Sif rifjar upp þegar Agnes í aðdraganda jóla vildi meina að hríðfallandi traust til kirkjunnar mætti rekja til siðrofs í landinu. Segir Sif að betur hefði farið á því að Agnes hefði litið í eigin barm en að reyna skella flóttanum frá kirkjunni á að kristnifræðikennslu hefði verið hætt í grunnskólum. Sif segir á öðrum stað:
„Ef þjóðkirkjan væri ekki eins og forsögulegur kýklópi, einglyrningur með svo takmarkaða sýn að hann sér ekki lengra nefi sínu, kæmi hún ef til vill auga á að gott leynist á óvæntustu stöðum.“
Þá fjallar Sig um heimildarmyndina Hail Satan sem vakti athygli á Sundance-kvikmyndahátíðinni á síðasta ári en myndin fjallar um söfnuð djöfladýrkenda í Bandaríkjunum. Sif segir:
„Hópurinn tilbiður ekki djöfulinn í eiginlegum skilningi heldur er myrkrahöfðinginn notaður sem myndlíking til að tákna þá sem standa utangarðs, eru öðruvísi, hugsa sjálfstætt og passa ekki inn í mót samfélagsins.
Musteri Satans boðar gagnrýna hugsun, forvitni, efahyggju og skoðanaskipti. Söfnuðurinn sinnir góðgerðastörfum og berst fyrir jafnrétti, kvenfrelsi, rétti til fóstureyðinga, réttindum samkynhneigðra, trúfrelsi og aðskilnaði ríkis og kirkju. Yfirlýst stefna satanistanna er „að hvetja til örlætis og samkenndar“.“
Sif bendir á að Musteri Satans starfi eftir sjö boðorðum sem standi hinum tíu fornu boðorðum sem Móses rölti með niður af hinu helga fjalli eftir að hafa átt þar spjall við Guð og hafa síðan þá verið trúarlegur og siðferðislegur áttaviti hinna kristnu. Boðorð Satanistanna eru eftirfarandi:
„– Maður ætti alltaf að gera sitt besta til að sýna öðrum vinsemd og samkennd eftir því sem skynsemi býður.
– Trúarbrögð ættu að aðlagast vísindalegum staðreyndum. Þess ber að gæta að vísindalegur sannleikur sé aldrei af bakaður í þeim tilgangi að hann falli betur að trúarskoðunum.
– Fólk er skeikult. Geri maður mistök ber manni að reyna að bæta úr þeim eftir bestu getu og bæta fyrir þann skaða sem kann að hafa orðið.“
Sif segir síðan að lokum:
„Þjóðkirkjan sem afskrifar 36,5 prósent landsmanna sem siðlausa gæti lært ýmislegt af satanistum. Til dæmis að tileinka sér sjálf það umburðarlyndi sem hún boðar.“
Hér má svo lesa pistilinn í heild sinni.