Segja að transfólk séu þolendur fordóma, ofsókna og ofbeldis á hverjum degi - borgarstjóri afhenti trans ísland styrk

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, afhenti samtökunum Trans Ísland styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen við hátíðlega athöfn í Höfða í gær. Þetta er í 33. sinn sem veittur er styrkur úr sjóðnum og nemur styrkurinn til samtakanna 500 þúsund krónum. 

Trans Ísland fær styrkinn í ár fyrir baráttu sína, stuðning og málsvörn fyrir transfólk á Íslandi. Félagið var stofnað árið 2007 og hefur síðan verið helsti málsvari transfólks á Íslandi. Trans Ísland hefur haldið uppi kynningar- og fræðslustarfsemi hér á landi.

Lagaleg staða transfólks á Íslandi hefur bæst til muna með nýjum lögum um kynrænt sjálfræði sem samþykkt voru á Alþingi á síðasta ári og lagði Trans Ísland sitt á vogarskálarnar við að gera lögin að veruleika. Samtökin segja að lögin séu nauðsynlegt skref fram á við í mannréttindabaráttu hinsegin fólks, en þau segja þó að enn séu óunnin verkefni hér á landi svo að allir megi njóta sömu réttinda. Samtökin segja að transfólk séu þolendur fordóma, ofsókna og ofbeldis á hverjum degi víða um heim meðal annars hér á landi.

Minningarsjóður Gunnars Thoroddsen var stofnaður af hjónunum Bentu og Valgarð Briem 29. desember 1985 þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Tilgangur sjóðsins er að veita styrk til einstaklinga eða hópa, stofnana eða félaga, á sviði mannúðarmála, heilbrigðismála eða menningarmála. Gunnar Thoroddsen var borgarstjóri í Reykjavík í tólf ár, frá árinu 1947 til ársins 1959. Eftir það var Gunnar þingmaður, fjármálaráðherra, sendiherra, hæstaréttardómari, prófessor við Háskóla Íslands, iðnaðar- og félagsmálaráðherra og loks forsætisráðherra til ársins 1983 auk þess sem hann gengdi fjölda nefndar og trúnaðarstarfa.