Sara missti móður sína: „að vera saman í sorginni, tengjast hvoru öðru, gráta, getur styrkt okkur öll svo mikið“

„Ég missti móður mína úr sjálfsvígi þegar ég var 23 ára. Við tók rúmur áratugur af erfiðleikum í kjölfar þeirrar sorgar. Sorgin lá eins og mara yfir lífinu og ógnaði mínu eigin lífi að mörgu leyti. Í kvöld mun ég segja frá því reiðarslagi og afleiðingum þess.“

Þetta segir Sara Þórðardóttir Oskarsson, varaþingmaður Pírata og listakona, í samtali við Fréttablaðið í dag. Í dag er einmitt alþjóðlegur forvarnardagur gegn sjálfsvígum og af því tilefni hefur verið ákveðið að efna til svokallaðra kyrrðarstunda í nokkrum kirkjum landsins. Sara mun segja frá reynslu sinni í Dómkirkjunni í Reykjavík í kvöld. Kyrrðarstundin mun hefjast klukkan 20:00.

Auk þess að segja frá erfiðri reynslu sinni mun Sara segja frá því hvernig henni hefur á síðustu árum tekist að vinna sig út úr mestu sorginni með faglegri aðstoð. „[E]inmitt með því að tjá mig um hana við aðra og opinberlega. Því er gott að fá að tala á kyrrðarstundinni í kvöld á alþjóðlegum degi gegn sjálfsvígum,“ segir Sara.

„Að finna fyrir samfélagsmættinum og hlusta á aðra opna sig um sína eigin sorg við mig í kjölfar þess að ég hef sagt frá minni reynslu hefur verið magnað. Að lifa einmana í óunninni sorg getur verið hættulegt. Birtingarmyndir slíks ástands geta verið: reiði, hræðsla, þunglyndi, kvíði, neysla og/eða sjálfsvígshugsanir - og jafnvel sjálfsvíg,“ bætir hún við.

„[A]ð vera saman í sorginni, tengjast hvoru öðru, gráta, vinna úr hlutunum og finna fyrir erfiðum tilfinningum saman án dómhörku, án skammar getur styrkt okkur öll svo mikið. Og mögulega bjargað lífum. Þorum að ræða áföllin, sorgina, órökréttar tilfinningar og sársaukann. Það styrkir okkur öll, og samfélagið okkar,“ segir Sara að lokum.