Rusl ekki tæmt, grunnskólum kannski lokað, lausir hestar ekki handsamaðir og götur ekki saltaðar: „farið varlega“

Fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir Eflingar sem hefjast þann 17. febrúar eru ótímabundnar. Þær munu að öllu óbreyttu hafa áhrif á vistun allra leikskólabarna í borginni vegna minni þjónustu. Verkfallið hefur áhrif á 1.650 notendur velferðarþjónustu borgarinnar. Eftir því sem verkfallið lengist mun það hafa áhrif á sorphirðu í Reykjavík og aðra umhirðu borgarlandsins.

Um 1.850 manns í Eflingu starfa hjá borginni á um 129 starfsstöðvum.

Áhrif á skóla og velferðarþjónustu

Fyrirséð er að matarþjónusta í einhverjum grunnskólum borgarinnar raskast og þurfa nemendur þar að koma með nesti í skólann. Eftir því sem verkfallið stendur lengur yfir mun það einnig hafa áhrif á þrif einhverra grunnskóla sem gætu þurft að loka, í það minnsta tímabundið.

Áhrif á þjónustu við borgarlandið

Á meðan verkfallið stendur yfir mun þjónusta við borgarlandið skerðast þannig að ákveðnum verkum verður ekki sinnt.  Má þar m.a. nefna:

  • Viðgerðir á brotholum í malbiki á götum í umsjón Reykjavíkurborgar.
  • Ruslastampar í borgarlandinu verða ekki tæmdir.
  • Hreinsun í kringum grenndargáma verður ekki sinnt.
  • Almennri hreinsun borgarlandsins verður ekki sinnt.
  • Öllu minna viðhaldi á götugögnum verður ekki sinnt t.d. á hellulögðu yfirborði og götu- og gangstéttarköntum.
  • Verkefnum sem tengjast óveðri, t.d. vegna asahláku, foki á veg sem hindrar umferð, stífluðum niðurföllum, pollamyndun og fleiru.
  • Lausir hestar verða ekki handsamaðir né önnur dýr í lausagöngu sem kunna að valda truflunum.

Á meðan verkfall Eflingar stendur yfir óska borgaryfirvöld eftir því að íbúar fari varlega þegar þeir eru á ferð um borgina, gangi vel um grenndargáma og ruslastampa og hafi gát á sér og sínum. 

Foreldrar/forráðamenn greiða ekki leikskólagjöld fyrir þá daga sem verkfall stendur yfir og ekki heldur fyrir máltíðir sem falla niður í grunnskólum.