Reykjavíkurborg mun ekki senda álagningarseðla fasteignagjalda í pósti

Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2020 verða aðeins birtir á vefsíðunni island.is og á Rafrænni Reykjavík á árinu 2020. Álagningar- og breytingarseðlarnir verða ekki sendir í pósti í samræmi við breytingu sem gerð var á lögum nr. 4/1995 sem tók gildi 1. janúar 2019, en þá er sveitarstjórn heimilt að senda tilkynningu um álagningu fasteignaskatts rafrænt.

Á vef Reykjavíkurborgar, reykjavik.is, undir „mínar síður“ munu fasteignaeigendur geta skoðað álagningarseðil fasteignagjalda eftir 27. janúar 2020 og alla breytingarseðla þar á eftir. Þar geta þeir einnig skráð sig í boðgreiðslu fasteignagjalda og gefið upp reikningsnúmer ef til endurgreiðslu kemur,  óskað eftir að fá senda greiðsluseðla fyrir fasteignagjöldum þar sem þeir verða, líkt og áður, ekki sendir til greiðenda, 18-77 ára. Einnig er hægt að senda þar inn erindi vegna fasteignagjalda.