Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi mun í næstu viku fara í veikindaleyfi. Það mun standa fram á haust. Þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins. Þar segir enn fremur að Rannveig fari í leyfið eftir ráðleggingar frá hjartalækni.
Sigurð Þór Ásgeirsson, fjármálastjóra Rio Tinto, mun að öllum líkum taka við forstjórastöðunni í fjarveru hennar en Guðdís Helga Jörgensdóttir verður starfandi fjármálastjóri.