Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, var gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. Þar sagði hann að starfslokasamningurinn sem gerður var við Harald Johannessen fráfarandi lögreglustjóra sem kostar um 57 milljónir ýti undir réttindi ákveðina hópa umfram aðra.
Ragnar sagði:
„Þetta er ekki það sem er að gerast á almennum vinnumarkaði. Við getum kannski unnið okkur inn sex mánaða uppsagnarfrest eftir tíu ára starf. / Þarna erum við að tala um miklu meira. Ef við ætlum að fara að vinna traust á stjórnsýslunni og stjórnvöldum þá verður fólk að haga sér þannig að við getum ekki farið að búa til sérstaka forréttindastéttir í okkar samfélagi sem fá alltaf miklu meira en allir hinir [...] Þetta er bara angi af þessari djúpu spillingu.“
Þá sagði Ragnar einnig:
„Ég held að kjósendur treysti ekki núverandi flokkakerfi til að leysa þennan vanda og brúa þessa djúpu gjá. Ég hef talað um að verkalýðshreyfingin eigi að bjóða fram. Hún er sterk og hefur aflað sér mikils trausts.“