Orð dagsins á Costco-kóngur Íslands. Engilbert Arnar stofnaði Facebook-hópinn Costco-gleði þann 7. nóvember 2017. Eins og nafnið gefur til kynna var tilgangurinn að vera með gleðina að leiðarljósi og finna spennandi tilboð og vörur í verslunarrisanum. Engilbert á orð dagsins en hann póstaði þeim inn í Costco-gleði á Facebook. Costco-kóngurinn er hugsi en hann segir:
„Smá pæling ... Ég verð að fá þetta á hreint. Ég fer t.d. í verslun (búð) og kaupi skinku sem er plöstuð inn, kaupi síðan brauð sem kemur í plastpoka, gríp með mér sinnep, remúlaði og tómatsósu allt saman í plasti, bæti síðan við steiktum lauk og dollan er úr plasti. Næ mér svo í salat sem pakkað er með plasti, gríp með mér servíettur sem eru pakkaðar í plasti og bæti svo við pylsubrauðum og pylsum sem eru pakkaðar með plasti. Svo þegar á kassann er komið fær maður ekki plastpoka því okkur er sagt að hann sé slæmur fyrir umhverfið?“
Spyr sá sem ekki veit!