Ólöf gagnrýnir þýðingarlaus samkomulög: „ef hægt væri að semja sig frá mannlegum harmleik væri ísland vímuefnalaust“

„Ef hægt væri að semja sig frá mannlegum harmleik í Ráðhúsinu væri Ísland vímuefnalaust, ungmenni myndu öll stunda hópíþróttir og stjórnmálamenn gætu samið um að hér fyndu allir hamingjuna.“

Þetta segir Ólöf Skaftadóttir, ritstjóri Fréttablaðsins, í leiðara blaðsins í dag. Þar ræðir hún um nýundirrituð samkomulög um ofbeldislausa skemmtistaði og vændislaus hótel. Með þessum samkomulögum er stefnt að því að fyrirbyggja allt mögulegt ofbeldi á skemmtistöðum, þar með talda kynferðislega og kynbundið áreitni, vændi og mansal.

Ólöf segir: „Í gær var málamyndasamkomulag um ofbeldislausa skemmtistaði undirritað. Samhliða var þýðingarlaust samkomulag gert um vændislaus hótel. Reykjavíkurborg, Samtök ferðaþjónustu fyrir hönd skemmtistaða, lögreglan og slökkviliðið taka höndum saman um þessi háleitu markmið. Hin svokallaða ofbeldisvarnarnefnd borgarinnar ber ábyrgð á utanumhaldi.“

„Til að ná fram göfugum markmiðunum treysta aðilar samkomulags á stefnugerð, samvinnu og ársfjórðungslega fundi. Þá er því beint að þeim sem reka skemmtistaði og hafa lifibrauð sitt af vínsölu að „afgreiða ekki áfengi til þeirra sem sýnilega eru ölvaðir“,“ bætir hún við og segir tilefnið ærið.

Ekkert gengið í baráttu við vændi

Ólöf bendir á að sannað sé að gríðarlegt framboð af vændi sé í Reykjavík. „Samt er áratugur frá því að lög tóku gildi um málaflokkinn sem áttu að ná til fólks í vændi og auðvelda því leið út. Hvorki virðist hafa gengið né rekið í þeirri baráttu, þótt margir mætir hafi reynt.“

„Nú ætla embættismenn sér að hittast fjórum sinnum á ári til þess að uppræta þau þjóðfélagslegu mein sem engu ríki hefur lánast að uppræta. Kannski hefur samt best tekist til í Hollandi, þar sem vændi er löglegt og ekki úthýst þangað sem enginn sér,“ bætir hún við.

Ólöf segir það ekki ætlun sína með skrifum sínum að gera lítið úr því að viðfangsefnið sé flókið og stórt. „Fullkomið skilningsleysi á aðstæðum fólks sem stundar vændi eða beitir ofbeldi er hins vegar nánast áþreifanlegt með málamyndaaðgerðum sem þessum.“

Rót vandans í flestum tilfellum fíkn

„Rót vandans, í flestum tilfellum, er fíkn,“ segir Ólöf. „Fíklar heyja baráttu fyrir lífi sínu á hverjum degi. Oft þurfa þeir að verða sér úti um efni eftir ógeðfelldum leiðum, vændi og afbrotum. Efnin eru dýr og oft keypt á svörtum markaði í undirheimum þar sem fáir sjá til og ofbeldi þrífst. Fíklarnir fá enga innihaldslýsingu á efnunum.“

Að lokum leggur hún til lausnir sem hún telur líklegri til árangurs:

„Heillavænlegra skref þeirra sem vettlingi geta valdið væri að útvega þeim lengst leiddu fíkniefnin eftir löglegum leiðum og uppi á borðum, opna neyslurými og fjölga skaðaminnkandi úrræðum. Sjálfboðaliðaverkefni á borð við Frú Ragnheiði, þar sem áhersla er lögð á að minnka skaðann sem hlýst af fíkniefnaneyslu, með því að útvega hreinar nálar, aðhlynningu og spjall, eru ómetanleg. Með aðgerðum í þá átt mætti bjarga mannslífum og koma í veg fyrir óhamingju.

Þessi meinta góðmennska fer hins vegar á hilluna við hliðina á öðru fáránlegu samkomulagi sem kvað á um „Fíkniefnalaust Ísland árið 2000“.“