Á fimmta tímanum í gær var tilkynnt um bílslys í Kópavoginum. Tjónvaldur slyssins gekk burt frá vettvangi með opna bjórdós í hönd en var handtekinn síðar. Er hann grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og áfengis ásamt vörslu fíkniefna. Var hann vistaður í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn málsins. Tjónþoli og farþegar hans eru skráð með eymslum eftir öryggisbelti og hnykk eftir slysið og voru báðar bifreiðar fluttar af vettvangi með Króki.
Húsráðandi á Seltjarnarnesi kom að ókunnugu pari í bílskúr sínum um fimm leitið í gær þar sem þau voru búin að taka verkfæri og fleira ófrjálsum höndum. Sagði hann parinu að skila mununum og fóru þau án þess að taka neitt með sér en ógnuðu húsráðanda með eggvopni áður en þau fóu. Parið hefur ekki fundist þrátt fyrir leit.
Fjórir voru stöðvaðir af lögreglu vegna gruns um ölvun við akstur og akstur undir áhrifum fíkniefna í gærkvöldi. Þá var einn ökumaður kærður fyrir að nota farsíma í akstri án handfrjáls búnaðar.
Um sjö leitið í gærkvöldi fékk lögreglan svo tilkynningu um þjófnað á heimili í hverfi 110. Húsráðandi var frá heimil sínu í rúmar þrjár klukkustundir og stal þjófurinn skartgripum. Fékk lögreglan aðra tilkynningu um innbrot á heimili á sama svæði en ekki er vitað hvenær farið var inn eða hverju var stolið því húsráðandi var ekki heima allan daginn.
Þá voru höfð afskipt af tveimur mönnum á bifreið í hverfi 116 og eru þeir grunaðir um að hafa verið að stela eldsneyti af bifreið.