„Þessi fallega sumarmynd sýnir Reykjavík í upphafi áttunda áratugarins – í byrjun sjöunnar eins og farið er að segja (áttundi áratugurinn er óneitanlega dálítið stirt). Myndin birtist á vefnum Gamlar ljósmyndir, hún er greinilega tekin úr turni Hallgrímskirkju sem var langt í frá fullbyggð þá. Maður myndi giska á árin 1972-1974.“
Þetta segir Egill Helgason í pistli sínum á Eyjunni. Egill segir að þrátt fyrir að á myndinni sjáist fólk á ferli að þá sé mannmergðin líklega meiri í dag þar sem Skólavörðustígurinn er orðin ein vinsælasta túristagata bæjarins.
„En það sem maður rekur augun í eru bílarnir, eða réttar sagt skorturinn á þeim. Þeir eru afar fáir miðað við það sem nú er. Mér telst til að þeir séu 26 talsins. Milli Baldursgötu og Óðinsgötu er einn einasti bíll,“ segir Egill og veltir því fyrir sér hvað hafi gerst. Af hverju bílunum hafi fjölgað svona mikið.
„Þarna komst fólk af án þessar gríðarlegu bílamergða. Borgin var þokkafyllri fyrir vikið. Og nú – þurfum við alla þessa bíla?“