Mynd dagsins að þessu sinni birti rithöfundurinn Illugi Jökulsson á Facebook-síðunni Algjörlega óáhugaverðar fótboltaupplýsingar. Þar spyr Illugi hvað handboltakappinn Guðjón Valur Sigurðsson eigi sameiginlegt með nokkrum þekktum knattspyrnumönnum sem hafa lagt skóna á hilluna. Illugi segir:
„Hér eru nokkrir fótboltamenn. Sumir þeirra þóttu ágætir á sinni tíð og spiluðu með liðum eins og Liverpool, Real Madrid, Man.United, Barcelona, Arsenal, PSG, Chelsea, Inter o.fl. En allir virðast þeir þó óneitanlega tilheyra liðinni tíð, að ég segi ekki horfnum heimi. En hvað eiga þeir sameiginlegt?“
Hér fyrir neðan má sjá myndirnar og til skemmtunar er svarið að finna neðst í þessari umfjöllun um mynd dagsins. Á myndinni má sjá Michael Owen sem gerði garðinn frægan með Liverpool. Eric Abidal sem lék með Barcelona. Norska sóknarmanninn John Carew, varnartröllið Rafael Marquez og svo franska sóknarmanninn Nicolas Anelka. Illugi birtir einnig mynd af Diego Forlan og Diego Milito.
En þá er komið að svarinu. Það sem Guðjón Valur fyrirliði íslenska landsliðsins á sameiginlegt með þessum fyrrverandi atvinnumönnum, ja, við skulum leyfa Illuga Jökulssyni að svara því. Hann segir:
„Jú, þeir eru allir jafnaldrar Guðjóns Vals Sigurðssonar sem enn er í fullu fjöri í handboltanum.“
Hinn fertugi Guðjón Valur hefur átt ótrúlegan feril í 20 ár sem hefur skilað honum hverju metinu á fætur öðru. Hann er enn í fullu fjöri, líkt og Illugi bendir á og mun hann fara fyrir sínum mönnum á Evrópumótinu sem hefst í dag. Þá takast Íslendingar á við erkifjendurna, Dani. Þess má svo að lokum geta að yngstu leikmenn íslenska landsliðsins eru yngri en elsta dóttir Guðjóns Vals!
Áfram Ísland.