„Elsku bestu áhorfendur sem fenguð EKKI að sjá Mömmu klikk í dag, ég biðst afsökunar á að hafa ekki getað sýnt. Það alltaf ömurlegt að þurfa að fella niður sýningar og aldrei gert í léttúð heldur bara þegar öll sund eru lokuð.“
Þetta segir einn okkar hæfileikaríkasti leikari og metsölurithöfundurinn Gunnar Helgason eða Gunni Helga eins og hann er gjarnan kallaður en hann tjáði sig fyrst á Facebook-síðu sinni. Í samtali við Hringbraut segir Gunnar:
„Ég er bara með þursabit. Eins og oft áður. Gerðist bara rétt fyrir sýningu í gær.“
Gunnar útskýrir á samfélagsmiðlum atburðarrásina, að hann hafi mætt ásamt öllum leikurum úr sýningunni sem og starfsfólki leikhússins. Þá hafi sjúkraþjálfari verið á svæðinu. Gunnar segir:
„Meira að segja nokkrir áhorfendur mættu (mjög snemma) og allt var klárt í upphitun, mækatjekk og svo sýningu ... en þegar það var ljóst að ég stóð ekki í lappirnar var ekkert annað í stöðunni en að fresta.“
Myndin var tekin eftir að Gunnar hafði dvalið hjá sjúkraþjálfara í tvo tíma en hann mætti í Gaflarleikhúsið í Hafnarfirði til að reyna að bjarga sýningunni.
„Það tókst ekki en hann kom mér á lappir. Þursabit er ekkert grín! En vonandi geta allir fundið miða á aðra sýningardaga sem henta,“ segir Gunnar og bætir við:
„Ég veit alveg að það stóð mikið til hjá sumum. Ein amman var mætt með sjö barnabörn í geggjuðu stuði en þurfti að fara heim. Bara út af þursinum í mér.
Þannig að, enn og aftur; afsakið ónæðið.“
Þá segir Gunnar að lokum:
„Og þetta er bakbelti, EKKI magabelti! Ég er svona grannur, sko.“