Mynd dagsins: eina veðurkortið sem þú átt að taka mark á – „líklegt er að fólk tapi áttum í stormviðrinu“

Guðmundur Brynjólfsson rithöfundur og pistlahöfundur hjá Fréttablaðinu á mynd dagsins. Guðmundur, sem þykir beittur og meinhæðinn í sínum skrifum deilir sinni útgáfu af veðurkorti fyrir storminn á Facebook. Þar segir Guðmundur:

„Hér er hægt að fylgjast með veðrinu í beinni. Ég er með kortið læsilegra en helstu veðurstöðvar, það er við alþýðuskap þetta kort og þó hávísindalegt.

Ég hef reiknað inn bráðnun jökla og eins gef ég upp helstu kennileiti því líklegt er að fólk tapi áttum í stormviðrinu. Ég hvet fólk til að halda á sér hita.“

\"\"