Mynd dagsins: björguðu hundi af skeri í óslandi

Lögreglan á Suðurlandi á mynd dagsins að þessu sinni en myndin var birt á Facebook. Þar segir:

„Liðsmenn Björgunarfélags Hornafjarðar björguðu þessum hundi af flæðiskeri í Óslandi núna rétt fyrir hádegið. Dýrið sem var kalt og hrætt, en er komið í hlýjuna á lögreglustöðinni á Höfn, þarf sárlega að finna eiganda sinn.“