„Jæja elsku ökumaður! Þú varst mjög nálægt því að gera mig vitni að harmleik!! Mjög nálægt,“ segir kona, sem ekki vill láta nafn síns getið, er hún ávarpar ökumann bifreiðar sem ók glannalega í Garðabænum fyrr í dag.
„Á þessum sama stað og við vorum stopp fyrir aftan strætó í Garðabæ lét lítil stelpa lífið fyrir nokkrum árum þegar ekið var á hana þegar hún var að ganga yfir gangbraut. Rétt áðan voru þrjár manneskjur að ganga yfir þessa sömu gangbraut á milli mín og strætó þegar þú bara gast ekki beðið þessar örfáu sekúndur og ákvaðst að bruna fram úr mér og strætó sem var akkúrat að taka af stað aftur,“ segir hún.
Fylgdist með bílnum skipta á milli akreina eftir atvikið
Konan segir nánast engu hafa munað að ökumaðurinn keyrði yfir fólkið sem var á leið yfir gangbrautina og að því hafi verið mjög brugðið.
„Veistu hvað þú keyptir þér mikinn tíma? Akkúrat engan. Ég lenti fyrir aftan þig tveimur gatnamótum seinna og fylgdist með þér svissa á milli akreina og bíla þangað til þú fórst í aðra átt en ég var að stefna. Mikið vona ég að þú hafir ekki átt langa leið fyrir höndum og átt stutt í áfangastaðinn sem var að stressa þig svona. Nema þú sért í alvörunni bara fífl í umferðinni og þetta sé daglegt hjá þér?“
Konan ákvað að grípa símann sinn og ná mynd af bíl ökumannsins þegar hún lenti fyrir aftan hann og vonar hún að það kenni honum lexíu.