Það styttist í komu jólasveinanna sem færa börnunum gjafir í skóinn. Við Íslendingar eigum 13 jólasveina og fyrir mörg heimili getur það þýtt nokkuð mikil útgjöld, sérstaklega þar sem gjafirnar virðast verða stærri sem börnin fá með hverju árinu.
Pistill eftir Margréti Júlíu Rafnsdóttur, verkefnastjóra innlendra verkefna hjá Barnaheill -Save the Children á Íslandi, hefur áður verið birtur en þessi orðsending hennar fellur aldrei úr gildi.
Margrét Júlía segir að jólasveinarnir hafa líklega ekki kynnt sér barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, að minnsta kosti ekki 2. grein sáttmálans, því stundum mismuna þeir börnum. Meðan sum þeirra fá mandarínu í skóinn sinn, eða jafnvel ekkert, fá önnur rándýr leikföng eða tæki.
Kæru jólasveinar
Mig langar að biðja ykkur að hætta að mismuna börnum. Mig langar líka að segja ykkur að börn tala saman og bera sig saman hvert við annað. Mig langar líka að benda ykkur á að þó ykkur langi að gefa sumum börnum dýra og flotta hluti, þá er óþarfi að íþyngja litlum skóm með stórum gjöfum
Og þá er komið að okkur foreldrunum. Það er nefnilega svo sérstakt að það virðast vera sömu börnin sem fá stóru og dýru jólagjafirnar frá foreldrum sínum og fengu þessar stóru Í skóinn.
Kæru foreldrar
Við viljum öll gera börnunum okkar vel og þó við höfum efni á því að gefa stórar gjafir, þá er það ekki stærðin og verðmiðinn sem skiptir öllu máli. Við berum ábyrgð á því að kenna börnunum að meta þær gjafir sem þau fá og eitt besta veganesti sem við gefum þeim út í lífið er að þau þurfi að hafa eilítið fyrir hlutunum. Ef við gefum þeim of mikið, of snemma, erum við yfirleitt ekki að uppfylla þeirra eigin þarfir, heldur okkar sjálfra. Ofdekur getur auk þess verið ein birtingarmynd vanrækslu, sem við viljum auðvitað ekki gerast sek um.
Munið líka að börnin okkar eru í samfélagi annarra barna. Þarna úti eru börn sem fá litlar, eða jafnvel engar jólagjafir. Þetta eru líklega sömu börnin og fengu lítið sem ekkert frá jólasveinunum. Þið megið líka hugsa til þessara barna og gauka einhverju að þeim.