Metstundvísi hjá icelandair í nóvember

Komustundvísi hjá Icelandair var 90.0% í nóvember samanborið við 75.7% á sama tíma í fyrra og farþegum til Íslands heldur áfram að fjölga. Þetta kemur fram í flutningatölum fyrir nóvembermánuð sem Icelandair Group birti í Kauphöll í dag.

Þetta er besti árangur félagsins í áratug þegar kemur að stundvísi en á þessum tíma, eða frá árinu 2009, hefur farþegafjöldi Icelandair tvöfaldast og fjöldi véla í flotanum rúmlega þrefaldast. Farþegum Icelandair til Íslands hélt áfram að fjölga í nóvember og voru þeir rúmlega 114 þúsund talsins, sem er 16%  aukning á milli ára. Það er í samræmi við áherslu Icelandair á ferðamannamarkaðinn til Íslands að undanförnu. Það sem af er ári hefur Icelandair flutt um 1,7 milljón farþega til Íslands, sem er 25% aukning frá árinu 2018.

Farþegum frá Íslandi fjölgaði einnig í nóvember miðað við sama tíma í fyrra, eða um 9%, og hefur fjölgað um 19% það sem af er ári. Tengifarþegum fækkaði í nóvember um 29% en fækkun þeirra er 9% það sem af er ári. Sætanýting í millilandastarfsemi var 78.6% samanborið við 79.8% á sama tíma í fyrra. Heildarfarþegafjöldi Icelandair fyrstu 11 mánuði ársins var rúmlega 4,1 milljón og hefur farþegafjöldinn aukist um 7% á milli ára.

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir:

„Stundvísi er einn mikilvægasti þáttur í starfsemi flugfélaga og hefur víðtæk áhrif, ekki síst á upplifun og ánægju farþega. Áhrifin koma jafnframt víða fram í starfseminni, svo sem á ýmsa kostnaðarliði, vinnuálag og þar með starfsánægju. Það þarf margt að ganga upp til að árangur náist en við höfum bætt stundvísi félagsins umtalsvert á undanförnum mánuðum með samstilltu átaki starfsmanna, þrátt fyrir álag og breytingar á leiðakerfinu vegna kyrrsetningar MAX vélanna.

Við munum áfram leggja áherslu á markaðina til og frá Íslandi í vetur og á næsta ári. Sveigjanleiki í leiðakerfi félagsins gerir okkur kleift að færa tíðni á milli áfangastaða til að mæta eftirspurn, auka hagkvæmni og halda áfram að styrkja starfsemi félagsins.“