„þess vegna þarf að öskra á hana“

Ung vinstri græn, Ungir jafnaðarmenn, Ungir píratar og Ungir sósíalistar hafa bæst í hóp þeirra sem standa að baráttufundinum „Lýðræði - ekki auðræði“ á morgun, laugardaginn 7. desember. Einnig hefur Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar ákveðið að styðja kröfur fundarins. Félögin sem þegar höfðu lýst yfir stuðningi eru auk Stjórnarskrárfélagsins: VR stéttarfélag, Efling stéttarfélag, Öryrkjabandalag Íslands, Gagnsæi - samtök gegn spillingu, Samtök kvenna um Nýja stjórnarskrá og hópur almennra borgara og annarra félagasamtaka.

Ræðufólk á morgun verður:

Drífa Snædal, formaður ASÍ

Bragi Páll Sigurðarson, rithöfundur

Þorgerður María Þorbjarnardóttir frá Ungum umhverfissinnum

Fulltrúar Krakkaveldis Katrín Oddsdóttir, formaður Stjórnarskrárfélagsins og einn skipuleggjanda, segir að rúmlega 4600 manns hafi mætt á Austurvöll laugardaginn 23. nóvember síðastliðinn og tekið undir kröfurnar: „Þegar eitt fjölmennasta stéttarfélag landsins bætist í hópinn, Verslunarmannafélag Reykjavíkur, er ljóst að afar stór hluti landsmanna styðji kröfurnar okkar. Slíka samstöðu og fjölda getur engin ríkisstjórn hunsað eða horft fram hjá.“

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir: „VR hvetur almenning til að sýna samstöðu gegn spillingu og mæta á Austurvöll.“

Þær kröfur sem liggja að baki fundarins eru þær að:

Sjávarútvegsráðherra segi tafarlaust af sér embætti

Alþingi lögfesti nýja og endurskoðaða stjórnarskrá sem landsmenn sömdu sér og samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu 2012. - Að sjálfsögðu með því auðlindaákvæði sem kjósendur samþykktu.

Arður af nýtingu sameiginlegra auðlinda landsmanna renni í sjóði almennings til uppbyggingar samfélagsins og til að tryggja mannsæmandi lífskjör allra.

Á fundinum mun Hemúllinn flytja tónlist og hann segir: “Spillingin er með skollaeyru – þess vegna þarf að öskra á hana.”

Nánari upplýsingar er hægt sjá á Facebook-viðburði mótmælanna